lesbos2005
Klukkan
Dagsetning
20. mars 2010
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 3 nóvember
03.11.2009 19:21:55 / birta

krakkahittingur

hæhæ
ég ætla að bjóða ykkur og krökkum í smá hitting heima hjá mér á laugardaginn næsta kl 14. Þær ykkar sem ekki eigið börn en viljið hittast (svona af því að það er langt síðan það var saumó ;) ) endilega komið líka :) 

Hlakka til að sjá ykkur :) kv Birta

» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2009 20:16:48 / birta

PARTÝ PARTÝ PARTÝ PARTÝ!

Jæja girlís :) búið er að panta borðstofuborðið og leyfið fyrir partýhaldi er komið í gegn hjá húsbóndanum! Hvernig líst ykkur á 4. sept? Saumó-kveðjupartý fyrir Siggu og Hrafnhildi :) þannig að það er möst að þær mæti ;)

» 30 hafa sagt sína skoðun

25.07.2009 16:09:31 / birta

Bók um sögu hjúkrunarfræðinga á Íslandi

hæhæ
ég var að rekast á bréf sem við fengum sent til okkar í apríl s.l. Þar gefst okkur kostur á að kaupa bók í forsölum um sögu hjúkrunar á Íslandi á síðustu öld. Hefur einhver pantað bókina? Mig langar nefnilega í hana og í bréfinu er sagt að maður eigi að skrá sig á hjukrun.is en ég finn ekkert um þetta þar. Ætli ég eigi bara að senda email? Einhver sem veit?

og svona í framhjáhlaupi :) þegar ég kem í bæinn og verð komin með borðstofuborð þá verður 2007-þema saumópartý :) er að skipuleggja ,,matseðilinn" Vonandi næ ég að gera þetta áður en Sigga og Hrafnhildur yfirgefa okkur......stemning fyrir því?

kv Birta


» 13 hafa sagt sína skoðun

15.03.2009 20:08:10 / ilmur

Árshátíðarferð hannyrðaklúbbsins Hjúkket

Inga: Þessi færsla er sér gerð fyrir þig my darling.. og FARÐU SVO AÐ KOMA ÞÉR Á FACEBOOK LÚÐINN MINN :)

Hér er dagskráin .. copy-pasteað af Facebook... verst að þú missir af allri krassandi umræðunni ;) 

Fös
kl.8: La go..
kl.13: Ó Akureyri, ó Akureyri ... rennum í hlaðið á bústaðnum
kl. 14? Spókum okkur um bæinn, skoðum mannlífið og ...kannski föt
kl. 18?? Gúllassúpa a la Hrafnhildur right??? upp í bústað semsé..
13 Hvítvínsgljáaðar stelpur -pottapartý, twister og sing-star. Öss getur ekki klikkað!!

Lau:
kl.12-13; Rub 23 ..að éta
kl. 15 ?? Sund og sjæning
kl. 17: Vínsyndaferð í Galleríið til tengdó hennar Birtu, ógó flott list þar.. Birta ætlar að útvega henni hvítvín auk þess sem hún býr til Beilísbollur (sem ég get varla beðið eftir að smakka!)
kl.19: FÚLAR Á MÓTI - best að tæma þvagblöðruna áður, nú eða ... (varúð, einn klassískur djókur á leiðinni..) ...setja upp þvaglegg áður! Ho ho ho..
kl.21: Greifinn.. mæli með heitu súkkulaðikökunni í eftirrétt. Ég ætla að hringja þangað á morgun og reyna að díla hópafslátt/hlaðborð
Eftir matinn: Strikið og Parken (skemmtistaður niðrí bæ, rétt hjá Greifanum), einkasamkvæmi hannyrðaklúbbsins Hjúkkets áður en við málum restina af bænum rauðann!!

Sun:
No comment.. legg þó til að við komum allars saman við í Bakaríinu við Brúnna á leiðinni heim og kveðjum Birtu þar með Súpu í brauði. All svaðarlega gott í þynnkunni og fyrir heimferðina.

Þú átt að borga Birtu miðann í leikhúsið.. símanr hennar er: 8670868, upp á að fá reikningsnr og það allt.. held að það séu allar aðrar búnar að borga.. amk flestar.

kv. Ilmur

» 2 hafa sagt sína skoðun

21.01.2009 23:37:56 / Hjúkkupíur

partí!

Jæja! 

Nú er komið nóg af saumaklúbbum og barnahittingum!
Nú höldum við alvöru, gamaldags partí* að kvöldi 31. janúars n.k., heima hjá Hrafnhildi (Ljósvallagötu 8)

*partí: hópur fólks sem kemur saman til þess eins að skemmta sér, helst með áfengisneyslu og háreysti

hverjir eru með?

» 28 hafa sagt sína skoðun

03.01.2009 11:26:37 / ellapaunk

Hittingur

Sælar dömur..

Var að spá í að bjóða í hitting heima hjá mér í næstu viku. Eitthver kvöldið;)

Alveg sama hvaða.. Tilefnið er að Guðrún Margrét er á landinu.
Hvað segið þið stelpur??  Segja fimmtudagskvöld 8/1 kl 20 ???

» 12 hafa sagt sína skoðun

30.11.2008 16:28:13 / birta

barnahittingur 5. des?

Hæhæ,
ég veit ekki hvort Súsí hafi minnst á þetta á jólahlaðborðinu, en ég er að koma í bæinn 5. des og var að spá hvort einhverjar ykkar væru í vaktafríi og nenntuð að hittast einhversstaðar með krakkana? Sirkabát seinnipartinn?

kv birta og kristján geir jólasveinn....

» 22 hafa sagt sína skoðun

17.11.2008 13:08:30 / ellapaunk

27.nóv 2008

Jæja stelpur nú fer að styttast í hittinginn. Hlakka rosalega til.

(tók síðasta kommentið af færslunni, petra sem skrifar)
jæja stelpur verðum við nú ekki að fara að negla þetta niður. ég ætlaði að bjóða ykkur til mín en sú sem var að spá í að skipta getur það ekki....beyglan. og svo eitt sem við vorum að spá nokkrar. hef aðeins verið að kynna mér þessar veisluþjónustur og í fyrsta lagi eru þær allar alveg fokdýrar og í öðru lagi miðast þær oftast við minnst 20 manns. Þannig að við vorum að spá hvort við ættum bara ekki að redda ´þessu sjálfar. Einhverjar sjá um forréttinn, sem gæti verið kannski 1-2 réttir, einhverjar saman um aðalréttinn og svo einhverjir um eftirréttinn. ætti hvorki að vera flókið né dýrt. Eða hvað finnst ykkur?

Ég held að við gætum alveg bjargað þessu sjálfar. EN hvað viljið þið þá borða og hver vill sjá um kjötið??? Eða viljum við ekki kjötmáltíð
Ég get því miður ekki boðið ykkur heim til mín. Á því miður ekki borð né nógu marga stóla. Nema það væri hægt að redda því. Þá er ykkur velkomið að koma heim til mín :)

» 41 hafa sagt sína skoðun

08.11.2008 17:03:19 / ellapaunk

Laugardagshittingur

OLA OLA

Mér áskotnaðist að losna við vakt á laugardaginn. En það vill svo til að þá á ég AFMÆLI :haha:
Mig langar alveg rosalega að gera eitthvað skemmtilegt, kíkja út á lífið (er alveg til í eitthvað annað) en vantar einhvern svakalega hressa og skemmtilega til að koma með mér. Er ekki tilvalið að hressa sig aðeins við eftir niðurdreps tal undanfarnar vikur og koma á pöparölt með mér á laugardagskvöldið 15.nóv?? 


Kveðja Ella beib í afmælisstuði


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 15:15:03 / Hjúkkupíur

Jólahlaðborð.....eða eitthvað álíka

Hæ hæ stelpur. Hvernig er það eigum við ekki að hittast og fara saman út að borða eins og við höfum gert fyrir undanfarin jól? Skella okkur á jólahlaðborð eða eitthvað annað út að borða, eða fá hittast í einhverju heimahúsi með góðan mat.

Hvað segiði um það?

Kveðja Petra

» 32 hafa sagt sína skoðun

03.10.2008 17:34:42 / birta

ILMUR!

ma - ma - ma - bara áttar sig ekki á þessu :!: Viltu gjöra svo vel að koma með nánari útskýringar á nýju vinnunni þinni! Er þetta nýtilkomið (eitt orð?)? Maður spyr sig.....Varstu ekki að recruita fólk að deildina ,,þína" í síðasta saumó? Ég er ekkert að skamma þig sko, finnst þetta spennandi og langar að vita meira. Hvernig bauðst þér þetta t.d.??

Þú verður bara að segja mér frá þessu hér fyrst þú beilaðir á norðurferðinni...

» 3 hafa sagt sína skoðun

23.09.2008 15:04:37 / ilmur

Hádegishlaðborð 4. ársins.. við þangað!

Hæ hæ skvíses..

Petra var að biðja mig að koma með sér á hádegishlaðborð 4. ársins í Eirbergi nk fimmtudag. Eigum við ekki að fjölmenna, styrkja gott málefni, éta á okkur gat og blaðra svolítið í leiðinni?

Við Petra ætlum allavega að mæta og reyna að dobbla fæðingarorlofsgellurnar með, Sigga, Inga.. hvað segiði? Einhverjar fleiri í fæð.orlofi eða á frívakt og til í að joina. The more, the marrier.

Sjáumst svangar í hádeginu á fimmtudaginn!!!! :)

Kv. Ilmur


» 4 hafa sagt sína skoðun

16.09.2008 09:00:20 / birta

ýsa og kjúklingur

Jæja stelpur, ég var að kaupa mér 7 kg af ýsu og mig vantar svo sniðugar og góðar uppskriftir af ýsuréttum. Mér finnst ýsan best soðin með kartöflum en það verður víst leiðigjarnt svona til lengdar....Svo ef einhver ykkar lumar á geðveikt góðum kjúklingaréttum nenniði að henda þeim hingað inn?

Góða ferð stelpur :)

» 6 hafa sagt sína skoðun

01.09.2008 21:59:24 / birta

SAUMAKLÚBBUR 7. SEPT!

Súsí ætlar að halda saumó 7. sept, þetta er á sunnudagskvöldið næsta, ég flýg í bæinn á sunnudaginn og gist hjá Súsí. Tilvalið að hafa hann þetta kvöld svo ég þurfi ekki að redda pössun :)

Ætlið þið svo ekki að mæta? Ilmur, það þýði ekki að kvarta um skort á hittingum og mæta svo ekki ;)

» 15 hafa sagt sína skoðun

25.08.2008 12:18:31 / ilmur

JÆÆÆÆJA STELPUR

Hæ stelpur! Er allt steindautt hérna hjá okkur eða hvað?

Fer ekki að verða kominn tími á hittíng, saumó eða eitthvað skrall??

Já og heyriði, ef einhverja ykkar langar að breyta til, vinnulega séð - þá er laus staða hj.fr. hjá okkur Petru og Ingu Björk á 12G. Rosa skemmtileg handlækningadeild, mjög góður mórall, sveiganlegur vinnutími og frábær deildarstjóri. Fjölbreytt og skemmtileg hjúkrun á sjúklingum eftir aðgerðir á neðri meltingarvegi. Við erum allavega mjög ánægðar þarna. Mikið gert til að verða að óskum starfsfólks varðandi vinnutíma og skemmtilegur hópur sem virðist haldast vel við deildina.

Látið nú í ykkur heyra stelpur og rífum þetta upp fyrir veturinn!!! Birta, hvenær helduru að þú skreppir suður næst?

kv. Ilmur


» 8 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 36
Leitarbox